Endurgreiðslustefna
Síðast uppfært 15. október 2026
Þú getur prófað Innihald frítt í 14 daga áður en þú greiðir nokkuð. Ef þú ert samt ekki ánægð/ur bjóðum við fulla endurgreiðslu:
- Innan 14 daga frá fyrstu greiðslu áskriftar, án skýringa.
- Innan 14 daga frá endurnýjun ársáskriftar.
Eftir það getur þú sagt upp hvenær sem er og áskriftin gildir út greiðslutímabilið. Við skoðum aðrar beiðnir um endurgreiðslu hverja fyrir sig, t.d. ef þjónustan hefur ekki virkað eins og lýst er.
Hvernig óska ég eftir endurgreiðslu?
Greiðslur eru afgreiddar af Paddle.com, söluaðila (Merchant of Record) allra pantana okkar. Óskaðu eftir endurgreiðslu á paddle.net með netfanginu sem þú greiddir með, eða sendu okkur póst á hallo@innihald.is og við komum beiðninni áfram. Endurgreiðsla fer á sama greiðslumáta og var notaður.